Langt frá eilífðinni
Alex er orðinn sautján en María er ennþá sextán. Þau eru kærustupar og eru búin að vera saman í næstum þrjú ár, síðan í byrjun 9. bekk. Núna eru þau í fyrsta bekk í Versló og eru á árshátíðinni sem er haldin á Broadway. Alex og María sitja á einum sófanum út í horni og eru í sleik, undir heyrist hátt í popplaginu MajaHi.