Teknóboltinn
Ég er teknóvera innst inni
ég bið læknana gjarnan um að skreyta röntgenmyndirnar af hjartastoppunum mínum með nýjum þýskum yfirstrikunarpenna
Ég fer stundum í göngutúra með vasadiskó
og hugleiði hversu hratt sé hægt að þrífa rauðan bíl í myrkri
og ímynda mér að ég eigi fyrir
snotru bassaboxi
Já ég er teknóbolti sem vinn hörðum höndum að vísinda og þróunarkenningum
Ég er lifandi sönnun þess að maðurinn er kominn úr vöggu siðmenningarinnar og út fyrir hliðarlínur formsins
Ég kannast við eitt og eitt lið í ensku deildinni
en ég er teknóbolti.