Friður
Með stírur í augum ég styggur
sit hérna dapur og hryggur
og dauðinn í loftinu liggur
loforð mín þögul hann þiggur.
Draumurinn um það að deyja
er dýpri en orðin mín segja
æ farðu nú þögn mín að þegja
þú ískalda einmannaeyja.
Hvert ferðu með mig friðurinn
fannhvítur er hann hesturinn.
sit hérna dapur og hryggur
og dauðinn í loftinu liggur
loforð mín þögul hann þiggur.
Draumurinn um það að deyja
er dýpri en orðin mín segja
æ farðu nú þögn mín að þegja
þú ískalda einmannaeyja.
Hvert ferðu með mig friðurinn
fannhvítur er hann hesturinn.