Barn í götu.
Barn í götu liggur,
blóðið rennur...
Lítil stúlka harmadauði þeim
er enginn spurði dóma.
Eflaust geta ástir þessar blómstrað,
þó ekkert vissu orðalausir hugar
um grimmd í verki þeirrar þjóðar
er að þegnum sínum varnarlausum
byssukjöftum beindu.
Blóðið ritar sögu þeirra
er skjóta niður hjörtu allra barna.
Og blóðið rennur enn...
blóðið rennur...
Lítil stúlka harmadauði þeim
er enginn spurði dóma.
Eflaust geta ástir þessar blómstrað,
þó ekkert vissu orðalausir hugar
um grimmd í verki þeirrar þjóðar
er að þegnum sínum varnarlausum
byssukjöftum beindu.
Blóðið ritar sögu þeirra
er skjóta niður hjörtu allra barna.
Og blóðið rennur enn...