Sorg
Stundum
fæ ég hlut
sem lítur út eins og leir
sem erfitt er að móta
flókið efnasamband
sem erfitt er að greina
mismunandi lögun
mismunandi stærð
sem erfitt er að sjá
Veit einhver hvað þetta er
eða hvenær það fer
því mig langar til
að geta hætt að gráta  
Elínborg Harpa Sæmundsdóttir
1979 - ...


Ljóð eftir Elínborgu Hörpu Sæmundsdóttur

Íslandskross
Skaparinn
Blandan
Glerkúlubúar
Regnið
Stafrófið
Sorg
Gabríel
Aska
Ákvörðun