Syndsamlegt líferni mitt nær hámarki
Syndsamlegt líferni mitt nær hámarki
ég brosi í fermingarstellingu
svara kurteislega líkt og sonur embættismannsin.
Ég segi henni hvað klukkan sé.
Skilningur minn á breytingarskeiðinu er
ágætur.
Ég er nátengdur móður minni
svo að ég veit hvað hún meinar þegar hún útskýrir tilfinningar sínar fyrir mér.
Mér finnst fyrrverandi maðurinn hennar
skemmtileg týpa
en hann hefði mátt koma betur fram við hana.
Ég er stoltur af syni hennar, sem er útskrifaður úr KB bankanum og innskrifaður á Wall Street.
Ég skoða myndina af honum og segi henni að hann sé næstum jafn myndarlegur og hún.
Ég kyssi hana nautnafullt bless,
þó svo að ég kunni illa við
að taka
í
rass
á fyrsta deiti.