Verkur
Ég fæ stundum heiftarlega verki
verki í magann
verki í hausinn
verki í sálina
verki í punginn
verki í öxlina
verki í góminn
verki í peningabudduna
verki í lifrina.
Ég fæ stundum heiftarlega verki
en versti verkurinn er tvímælalaust
verkurinn sem beit sig fastan
daginn sem þú fórst.
verki í magann
verki í hausinn
verki í sálina
verki í punginn
verki í öxlina
verki í góminn
verki í peningabudduna
verki í lifrina.
Ég fæ stundum heiftarlega verki
en versti verkurinn er tvímælalaust
verkurinn sem beit sig fastan
daginn sem þú fórst.