Maður dettur í poll
Þegar að ungi maðurinn
hrasaði
þá duttu allir peningarnir hans í götuna
og urðu gráir einsog skýin
áður en þeir eyddust upp í bleytunni.
Ungi maðurinn reis ekki
undan oki sjálfs síns og kenndi gráum himninum og peningaleysinu um.
Hann fékk sér gúlsopa úr drullupollinum og lét tjörugt ræsisvatnið leika um hvern krók og kima af líkama sínum.
Hann fann hvernig sterkur vökvinn slökkti í hverjum lífsneistanum á fætur öðrum.
Hann mundi skyndilega allt það ljóta en einsog í draumi , svo að hann slapp við samvisku og klístur á höndum.
Hreinsýnn og nötrandi byrjaði hann að drukkna hægt og rólega en átakanlega örugglega líkt og skrokkur á færibandi í sláturhúsi.
Eftir svolitla stund gátu men séð með 3.auganu, sál gufa upp úr drullupolli, morkna sál úr úldnum polli.
Í loftinu mátti líta öflug hreinsitæki
með vængi og sólgleraugu.