bitlaus
maður og kona og barn og mús og föt og bíll og hús og frumleikinn
tómleikinn
sviplaus snekkja lystisemda allsráðenda
tómar nýlendur
sviptar gulli
sveipaðar gulli
endurteknar minningar af dánum mönnum
sífellt klæðskipti
blæðingar
spilling
ekkert nema botnlaus spilling
rótlaust þangið tekur mig með sér
ég finn samastað þess í birtingu
þar birtist mér snillingur
hann situr á bekk við borð
en ritar ekki orð
tómur, fúll, farinn, torskilinn
þreyttur, sveittur, eyddur
guð rakar sig fyrir framan brotinn spegil
skafan er bitlaus
heimsmynd hans litlaus
hann boðar hamingju
færið mér frekar samloku
ég þrái þunglyndið
ég sný mér að ritstörfum en fæ engin laun
tómleikinn
sviplaus snekkja lystisemda allsráðenda
tómar nýlendur
sviptar gulli
sveipaðar gulli
endurteknar minningar af dánum mönnum
sífellt klæðskipti
blæðingar
spilling
ekkert nema botnlaus spilling
rótlaust þangið tekur mig með sér
ég finn samastað þess í birtingu
þar birtist mér snillingur
hann situr á bekk við borð
en ritar ekki orð
tómur, fúll, farinn, torskilinn
þreyttur, sveittur, eyddur
guð rakar sig fyrir framan brotinn spegil
skafan er bitlaus
heimsmynd hans litlaus
hann boðar hamingju
færið mér frekar samloku
ég þrái þunglyndið
ég sný mér að ritstörfum en fæ engin laun