Helsti sérfræðingur um skotvopn í landinu
Helsti sérfræðingur um skotvopn í landinu kom við mig

hann kom við magann minn með samlokunni sem hann eldaði fyrir mig
hann kom við lungun mín með tóbakinu sem hann vafði handa mér
hann kom við orðin mín með uppskrift af tequila sunrise
hann kom við varir mínar með ljúfum kossi sem ég fæ ekki gleymt
augun mín í augnablik yfir kaffibolla

En eftir á að hyggja...
held ég að hann hafi hreinlega skotið mig

...og ég fallið  
Ósk Erling
1980 - ...


Ljóð eftir Ósk Erling

Malt
Lopi
Andmæli malt
ást-ar-þrá-hyggja
ástarsími
Sósulitur
Orða illgresi
gjöf
Próf
Fiskur
Kúbein
Svo svo svo...
Ástkonan
Berjamó
Sparaðu
Helsti sérfræðingur um skotvopn í landinu
Leiðinlegt ljóð
þrá
Norðurljósahaf
Þrjátíu og sjöþúsund og fimmhundruð mínútur
Af hjartans list
94-13911
Einstakur á(vax)stariðnaður