94-13911
...verðum að hætta hittast svona orðin alveg örmagna á þessari samskiptaaðferð...
hvað segirðu....gott veðrið og svona....kaffi! Já ég ætla fá mér kaffi endilega...

neinei ég hef ekkert farið, það er alltaf svo dimmt úti núna...
nýja þáttin á stöð 1? já, samt ógeðslega leiðinlegur leikarinn...þessi með skallann...æji sem er alltaf vælandi í konunni sinni...
já ég er búin að láta skoða bílinn...hann fékk samt ekki skoðun...kunni samt ágætlega við skoðunargaurinn...kannski aðeins of vel girtur en það er ekki heimsbyggðarvandamál. .....

sko ef ég mætti ráða þá fengu allir ókeypis varasalva...það er nauðsýnlegt ekki eh frítt í sund og strætó....

nei ég er ekki ennþá búin að því...ég er alltaf að fresta þessu...þori ekki að segja honum hvað mér virkilega finnst um hann...ég sauð handa honum egg þegar hann kom með pappírana til mín...svo sagði hann
,,ég bið að heilsa mömmu þinn vona að hún sé við góða heilsu´´
mig langaði nú mest til að sparka í punginn á honum...
heyrðu já ég heyri í þér síðar..aha..já ok, já gerum það, ég skal koma með...þá verður allt miklu auðveldara og svona...meira notalegt...
neinei ég er ekkert einmanna....hef bara ekkert heyrt í honum í kvöld...hann er víst upptekin...
ég fór í bað og svona rakaði fótleggina og speryjaði á mig kölnarvatni, gaf kettinum slátur og eldaði sjálf!
svo var ég bara mixa cd fyrir systir mína...æji þessa sem á allt!
ok... ég fékk mér smá hvítvín
það fór svo vel með baðinu...

heyrðu áður en ég kveð þig...þá langar mig til að segja þér að uppskriftin af velferðarkerfi ástarinnar er staðsett á Þórsgötu 17a 101 Rvk.  
Ósk Erling
1980 - ...


Ljóð eftir Ósk Erling

Malt
Lopi
Andmæli malt
ást-ar-þrá-hyggja
ástarsími
Sósulitur
Orða illgresi
gjöf
Próf
Fiskur
Kúbein
Svo svo svo...
Ástkonan
Berjamó
Sparaðu
Helsti sérfræðingur um skotvopn í landinu
Leiðinlegt ljóð
þrá
Norðurljósahaf
Þrjátíu og sjöþúsund og fimmhundruð mínútur
Af hjartans list
94-13911
Einstakur á(vax)stariðnaður