silfur
hvar er ég
og hver er ég
hvar er egóið mitt
og hreina sjálfsmyndin
og náttúran
ég afbyggi
afneita
ég afbý hér
ég afþakka sendan áhuga
í formi plastskeyta
sem ekkert merkja
sendu mér samúðarskeyti
í tilefni þess að jörðin er ónýt
af of mikilli pappírsnotkun
vefðu það í plast
hvað annað
ég á ekkert annað en plast að gefa þér
ekki vil ég afhenda þér á silfurfati silfurverðlaun
brostið hjarta og brotna kynverund
ég er drottnari heimsins
skóp hann og mun eyða honum aftur
ég reyni að plasta heiminn áður en ég eyðilegg hann
til að ekki fari allt út um allt
ég nenni ekkert að þrífa eftir mig
hringi bara í mann sem huslar líkið
og hver er ég
hvar er egóið mitt
og hreina sjálfsmyndin
og náttúran
ég afbyggi
afneita
ég afbý hér
ég afþakka sendan áhuga
í formi plastskeyta
sem ekkert merkja
sendu mér samúðarskeyti
í tilefni þess að jörðin er ónýt
af of mikilli pappírsnotkun
vefðu það í plast
hvað annað
ég á ekkert annað en plast að gefa þér
ekki vil ég afhenda þér á silfurfati silfurverðlaun
brostið hjarta og brotna kynverund
ég er drottnari heimsins
skóp hann og mun eyða honum aftur
ég reyni að plasta heiminn áður en ég eyðilegg hann
til að ekki fari allt út um allt
ég nenni ekkert að þrífa eftir mig
hringi bara í mann sem huslar líkið