snje
snjór
örþunnur snjór
á glerhimnu
ískalt vor
blautt gler
gerðir þínar eru dyggðir
sem eru afturkallaðar
aftur
öfugmælavísur kveðnar úti í horni
til tómstunda
hálfkveðnar
ljótar
afkáralegar
á morgun breytast tölurnar
og mennirnir með
menn eru góðir með sig
meðfram meðvirkninni
í reynd hlýtur sú hugsun að skila okkur öllu því sem við höfum óskað okkur
raunar finnst mér það ólíklegt
reyndar er það óhugsandi
það er ódrepandi
óbilandi þrá til að takast á við hið illa
örþunnur snjór
á glerhimnu
ískalt vor
blautt gler
gerðir þínar eru dyggðir
sem eru afturkallaðar
aftur
öfugmælavísur kveðnar úti í horni
til tómstunda
hálfkveðnar
ljótar
afkáralegar
á morgun breytast tölurnar
og mennirnir með
menn eru góðir með sig
meðfram meðvirkninni
í reynd hlýtur sú hugsun að skila okkur öllu því sem við höfum óskað okkur
raunar finnst mér það ólíklegt
reyndar er það óhugsandi
það er ódrepandi
óbilandi þrá til að takast á við hið illa