Frjáls samkeppni ehf.
Að fávísum frelsisvanda,
fleygja heilögum anda,
lepja samkeppnis landa,
lögmál gilda þar handa.
Um málstaðinn mæta
má eflaust þræta,
eigi eitthvað að bæta
ekki mun það alla kæta.
Þó kommar vilji þín gæta
muntu sængina þína væta.
Því er gott að vera góður
og greinilega dáldið fróður,
selja skaltu föður þinn og móður
svo stækki þinn sjóður,
borðaðu besta kjarnafóður,
bara ef eykst þinn hróður
og lítill er á því ljóður,
ljúfi í vöngum sértu rjóður.
Ef keypti ég allt, og metið var kalt,
kunni að vera svalt,
kannski ef, svefni réttlátra ég sef,
sjálfur sem fyrir það galt.
Að standa fyrir sjálfum sér,
og sínum,
fyrir mér leikur einn er,
að tíma mínum,
fylgi ég, sama hvert fer,
línum fínum.
fleygja heilögum anda,
lepja samkeppnis landa,
lögmál gilda þar handa.
Um málstaðinn mæta
má eflaust þræta,
eigi eitthvað að bæta
ekki mun það alla kæta.
Þó kommar vilji þín gæta
muntu sængina þína væta.
Því er gott að vera góður
og greinilega dáldið fróður,
selja skaltu föður þinn og móður
svo stækki þinn sjóður,
borðaðu besta kjarnafóður,
bara ef eykst þinn hróður
og lítill er á því ljóður,
ljúfi í vöngum sértu rjóður.
Ef keypti ég allt, og metið var kalt,
kunni að vera svalt,
kannski ef, svefni réttlátra ég sef,
sjálfur sem fyrir það galt.
Að standa fyrir sjálfum sér,
og sínum,
fyrir mér leikur einn er,
að tíma mínum,
fylgi ég, sama hvert fer,
línum fínum.
En er það ekki bara málið að leyfa þeim sterkasta að kýla hina í rot??