Dauðinn
Það kom andlát í fjölskylduna mína.
Andlát varð í fjölskyldunni.
Við fjölskyldan sáum andlát þjóta framhjá okkur.
Andlátið fór um fjölskylduna.
Með látum andaðist einn úr fjölskyldunni
og með látum andaði fjölskyldan án andláts eftir að lát varð á öndun þess fyrrnefnda.
Já það gerðist margt þennan dag og það er margt hægt að segja um það. Þó veit enginn hvað gerðist í raun og veru því að sá vinkill, sem bar með sér sönnurgagn eða gagnleysu, hvarf einhvern veginn á svipstundu, án þess að láta eitthvað spes og andlegt frá sér áður.
Dauðinn birtist okkur í jafn mörgum formum og grjónagrauturinn birtist í mismundandi pottum í mismundandi húsum.
Hann er kannski líka eins og bragðið.
Stundum er hann beiskur, stundum er hann súr, stundum er hann tilvalinn og smekklegur en stundum þá er hann bara alls ekki við hæfi.
Hver sem hann er, hvort sem hann er eða hvert sem hann kemur eða fer þá er hann hér hjá mér og hjá þér, en hann bara heldur sig svolítið sér.