Köllun
Ég hef aldrei haft unun af neinu nema tilbúnum rósum og regnbogum sem að afskræma hugan líkt og sólarlagið gerir stundum innum gluggan á kristalvöruversluninni.
Ég elska ekki en hef þó ekki taugar í það að hata,ég tala nú ekki um tíma.
Það væri hugsanlega hægt að kalla mig letingja eða aumingja en ég kýs að hlusta ekki eftir þvílíkum köllum því ég kom ekki hingað til þess að svara einhverju því að ég er hið raunverulega svar.
Á þessu stigi málsins kann sumum að finnast það depremerandi sjón að sjá \"Svarið\"fara út í vídeóleigu og leigja nýju myndina með Van Damme, en jú vissulega vekja öll svör stundum upp spurningar, sumar þeirra eru stórar en aðrar litlar.
Sumir eru bara svör en aðrir finna sig sem spurningar. Síðan eru til upphrópunarmerki og spurningarmerki sem eru í raun mjög merkileg án þess þó að marka nokkurs staðar djúp spor.
Ósýnileg spor eru hins vegar oft vandfundin og því örugglega þaulerfitt að feta þau og má kannski líkja því við samfarir við huldufólk og drauga.