Ástin mín
Með nætursaltaðar varir þá gengur hún upp að andliti mínu.
Hún er með reykmettaðar tennur og flúorlituð brjóst.
Tónlistin sem hljómar er eftir erlendan höfund, sem að lifir víst hressandi lífi við bága heilsu.
Þegar ég spyr hana hvort hún vilji koss,
þá hlær hún og segir ha, síðan fer hún að pissa.
Ég borga leigubílinn með herkjum og kem henni undir sæng en sofna þó ekki því við og við þá þarf hún að æla.
Tuttugu og tveimur árum seinna þá þá skýst ég með sama áhuga út í apótek fyrir hana og sæki beinþynningarlyf sem hún tekur reglulega.