Jón eða séra jón
Hann bað mig um að redda sér hassi.
Ég hringdi nokkur skuggaleg símtöl.
Nokkru seinna hringdi ég hneykslaður í lögguna og bað þá um að handtaka dópista sem væri alltaf að angra mig.
Þeir gerðu það.
Hann var ekki með efnið á sér og þeir spurðu hann hvar það væri.
Hann sagðist ekki vera með það á sér.
Þeir tóku hann og sett´ann inn
fyrirbyggjandi aðgerðir sögðu þeir.
Þegar hann kom út þá bönkuðu þeir og spurðu hann hvar hassið væri.
Hann varð dálítið pirraður og sagðist hafa gefið vinkonu sinni með sér og að þau hefðu fyrir löngu reykt það upp til agna.
Þeir tóku hann aftur. Þeir tóku konuna hans og börnin hans, helvítis hassbörnin.
Sögðu að það væru fyrirbyggjandi aðgerðir.
Þau streittust á móti því þau voru frekar ósátt við þessa undarlegu atburðarrás, þó þau viðurkenndu fúslega að þeim líkaði alls ekki við það þegar að pabbi gamli væri að smóka.
Þeir hristu hausinn og skrifuðu bréf.
Kveiktu á blysum.
Vopnuðust og reyktu sig bóluskakka áður en þeir fóru og tóku þau.
Eftir að hafa útmáð hassfólki þá voru þeir sáttir
einir í
sinni
margumtöluðu
vímu.