Hugleiðing um ástand
Fullur af synd
legg ég mig í líma við að
púsla þessu öllu saman
þannig að úr verði mynd.
Mynd sem ég skil og get úskýrt fyrir mömmu og ástinni.
Sneyddur synd
stend ég upp með óskilgetið bros á smettinu
og legg hugaður af stað
í enga átt
þar sem enginn endir
býður mér góðan dag
og ekki neitt .