Salarstemming.
Sjálfumglaði galgopinn
hringar sig utan um
míkrafóninn og eys úr skálum sínum
sandblásnum minningum liðinna daga.
Fólkið í salnum horfir á hann og man eftir sjálfum sér í
rútum,
tjöldum,
rúmum,
móum
og stórmörkuðum.
Síðan fer sjálfumglaði galgopinn heim og hengir sig á heimatilbúinn snaga laus við alla yfirborðsmennsku.
Fólkið mætir hins vegar í salinn reglulega
og minnist þess
að til eru ævintýr og óraunveruleiki á mánudögum og miðvikudögum
en hina dagana
eru til lífeyrissjóðir,
innvextir og útvextir,
barnalán og barnabætur,
bílalán og bankar.
Sjálfumglaði galgopinn kemur hins vegar bara í salinn á mánudögum
og miðvikudögum
og ef vel er að gáð
má glöggt sjá
far eftir
snaga
á jakkakraganum hans.