frjáls
Ég vaknaði í dag
og fann hvað mér leið vel
fanst það skrítið
hafði ekki liðið vel lengi
fór að hugsa hvað væri að
þá fann ég að skugginn sem
var buin að vera yfir mér
árinn öll fjögur
var farinn
og í staðin
var komið ljós
mikil birta
sem ég hafði saknað lengi,
þá vissi ég
að hann var farinn
ekki farinn þannig,
heldur farinn af sálinni minni
hann hafði verið þar of lengi
ég gat lifað aftur
þetta var eins og að vera frjáls, frjáls eins og fuglinn
sem svífur yfir okkur
og hefur engar áhyggjur
engar kvaðir
ekkert
bara að vera til,
allt var orðið gott
þannig leið mér þennan dag
þetta var eins og ég hefði
aldrey verið ástfanginn
mér leið vel
var orðin frjáls



 
Rós
1972 - ...


Ljóð eftir Rósu Björk Kristjansdóttur

Friðurinn
Fegurð
Kvalinn
Sár
Hugsanir
folinn
frjáls
Tafir
Sakna þín
Pensill
Gesturinn
Bullið