Saga sveitamanns
Ég bý yfir mínímalískum takti
og ég hef svolítið mónótónískar hugmyndir
Vinir mínir segja að ég sé
straight forward
(blátt áfram)
Stundum þá fer ég í náttföt sem ég á ekki
og tek upp hljófæri sem ég fel inní veggnum heima(það veit enginn að ég spila á hljóðfæri)
Ég varalita mig
og trúiði mér tónlistin er þannig að ég er með bóner allan tímann á meðan ég spila, sem er gott, svona myndrænt séð því ég geri þetta ávallt einsamall þannig að það getur verið hálfgerður félagsskapur fyrir mig að horfa á mig kastast í tilfinningar mínar úr speglinum.
Spegillinn endurkastar mér án hljóðs en þegar ég horfi í hann þá verður það sem ég sé svo ótrúlega magnþrungið að ég hugsa að hljóð myndi aðeins gera það óviðráðanlegt og ærandi.
Ég skjalfesti þetta allt á teip(segulbönd(myndsnældur með hljóði)
Skúffan sem ég geymi teipin í
er vel falin í kistu
sem er grafin í heiðmörk
Sumum kann að finnast þetta spennandi
en ég er bara svona
straight forward náungi
sem nenni sjaldan í ræktina
og á ekki pening fyrir
jeppa.