Á barmi annars hugar
Guðlaugur er ekki syndlaus maður
og það er Guðrún líklega ekki heldur
heimsmarkaðsverðið hefur fyrir löngu
upprætt alla synd
og gefið upp á bátinn
merkingu hennar.
Synd er ljótt orð um eitthvað ljótt
og í heimi best, súper, ultra og
100%free þá viljum við ekki að hver sem er sé að hafa í flimtingum einhver ljót orð einsog synd
Þegar trúarbrögðin(litabókarhugmyndir um GUÐ) og pólitíkin(litabókarhugmyndir um MAMMON) leiða saman hesta sína þá er ekki laust við að tískan taki við sér og skíri okkur inní söfnuð með stæl.
Ef maður trúir því að maður sé í tísku samkvæmt heimsmarkaðsverði þá getur maður sofnað merkingarlaus og syndlaus maður.