Ég sakna líka.
Ég sakna
alls þess sem stendur í reglunum
ég sakna barnsins míns
ég sakna ástarinnar
og ég sakna ríkissjónvarpsins
og ég sakna þess að hafa ekki lekið sem hraun niður fjallshlíð.
Gallinn er sá að ég sakna alltaf
áður en ég legg af stað og síðan gleymi ég.
Stundum þá er ég svo upptekinn við það að gleyma þegar ég legg af stað
að þegar ég kem til baka aftur
þá man ég ekkert hvert ég fór
eða til hvers
og gleymi því algerlega hvernig það er að sakna