Dagur fullkomnunar
Hvítar strendur
við mér blasa,
ómur hafsins
til eyrna berst.
Þú heldur um mig
sterkum höndum,
aldrei muntu
bregðast mér.
Sofnar sólin
bak við sæinn,
saman liggjum
ánægð tvö.
Er vaknar dagur
fullkomnunar,
horfir þú
í augu mér.
Sameining okkar
er sundur vorum,
að nýju loksins
hafin er.
 
Eyrún B
1979 - ...


Ljóð eftir Eyrúnu

Áminning
Draumur morgundagsins
Frosin mynd
Lítil sál
Fórn fagurgalans
Brosið
Barnsins augu
Tímaleysi
Nóttin
Dagur fullkomnunar
Er sú trúin til
Ungdóms einlægni
Hugsun vonar