Á röltinu meðfram miklubraut
Allir nálægir kóngar;
mætti ég biðja ykkur um að tilbiðja glitrandi mánann.
Hann er staðsettur fyrir ofan BSÍ
og kastar háfleygum skuggum á morgunglaða túristana.
Hægt er að komast nær með Icelandair,
þeir bjóða upp á mat fyrir tvo á gráu skýi,
ekki ýkja langt frá háskólanum.
Sólarupprás mun vera frestað fram yfir eftirréttinn,
ef fólk er lengi að borða.