Fljúgðu
Skapaðu
innri frið
slepptu sálinni
frelsaðu
andann þinn
og komdu
með mér burt

Hlýjaðu
jörðinni
með ást þinni
opnaðu
augun þín
og sjáðu ástina
mannfólkið
þarfnast hlýjunnar

Lyftu þér
uppfyrir
alla fordóma
Ég elska þig
komdu til
ljóssins
við verðum
að sýna
heiminum
rétta leið  
Birgir Hrafn
1982 - ...


Ljóð eftir Birgi Hrafn

Ást og friður
Opnaðu
Gefðu

Viltu
Friður
Fljúgðu
Rósuljóð