Hugarástand
Ég fiktaði í blóðinu þínu,
málaði með því myndir
á hvíta vegginn í eldhúsinu
og drakk fullt glas á eftir.

En þér fannst myndin ekki falleg,
varst með endalausan móral,
kannski finnurðu bara aldrei til.

Þú horfðir á mig,
augnaráðið geðveikislegt,
en ásökunin svo sterk
að ég naut þess að draga andann.

Þegar ég loksins lagði þig í rúmið
gastu ekki annað en grátið,
en ég hæddist að þér og hláturinn minn fylgdi þér inn í nóttina.  
K-Lo
1989 - ...


Ljóð eftir K-Lo

Til þín
dökkir veggir
Innlit
uppkast
...sama helvítis þvælan og venjulega.
nostalgía til framtíðar?
Til þín frá mér
Minning
Hugarástand
Sitt sýnist hverjum
Togstreyta
klisjukennt skáld á ljóð.is
Ég (í hnotskurn)
Stundum
Fyrir luktum dyrum
Í alla nótt
sunnudagsmorgunn