Eftir að þú ferð
Lyktin af þér hangir í loftinu enn
leifarnar af samveru okkar.
Innra með mér öll ég brenn
eftir eru ófullnægðir skrokkar.

Andardrátturinn teygar ilminn þinn
ímynd þín í hugsunum birtist mér.
Í hjarta mér hamingjuna finn
í hvert sinn sem birtist myndin af þér.

Horfin eru ummerki heimsóknarinnar
hugur minn leitar að þér.
Nú ertu farinn heim til hinnar
og hjarta mitt bíður hér.
 
Berglind Ósk Bergsdóttir
1985 - ...


Ljóð eftir Berglindi Ósk Bergsdóttur

Dauðinn
Berorðað
Kuntulaus hóra
Þunglyndi
með tímanum
Lífsspeki
Nýöld er köld
“Það varð slys..”
Ástarbrum
Okkar ást
Skaut framtíðar
Ástarsorg
ljóð.is
Leyndarmálið
Eitt andartak
Tær ást
Ríma til þín
Óöryggi
Biðstaða
Ein ég sit og surfa
Í hjarta mér þú dvelur
Þrá eftir því ófáanlega
Ást í takt við lífið
Venslin okkar
Fingraleikfimi
Eftir að þú ferð
Ástríður
Ástarspilið
köfnun er nú ekkert svo slæmur dauðdagi
Er það ekki?
Þinn missir
Söknuður II
Kollhnís
Óskila(ð)hjarta
Framhaldssaga
.....
Haustkvöld