Framhaldssaga
Það dæmigerða hefur gerst á ný
ég hélt ég væri hafin upp á ský
þegar veruleikinn neitaði mér um ástina
enn á ný
enn á ný

Í þetta sinn ég fullviss var
um að þú værir mitt endanlega svar
en okkur munu skilja að, himinn og haf
viss ég var
viss ég var

Hvernig endar þessi framhaldssaga
munu okkar líf sig að ástinni aðlaga
Hún fullkomin er ef á endanum náum við saman
þessi langa saga
þessi ástarsaga





 
Berglind Ósk Bergsdóttir
1985 - ...


Ljóð eftir Berglindi Ósk Bergsdóttur

Dauðinn
Berorðað
Kuntulaus hóra
Þunglyndi
með tímanum
Lífsspeki
Nýöld er köld
“Það varð slys..”
Ástarbrum
Okkar ást
Skaut framtíðar
Ástarsorg
ljóð.is
Leyndarmálið
Eitt andartak
Tær ást
Ríma til þín
Óöryggi
Biðstaða
Ein ég sit og surfa
Í hjarta mér þú dvelur
Þrá eftir því ófáanlega
Ást í takt við lífið
Venslin okkar
Fingraleikfimi
Eftir að þú ferð
Ástríður
Ástarspilið
köfnun er nú ekkert svo slæmur dauðdagi
Er það ekki?
Þinn missir
Söknuður II
Kollhnís
Óskila(ð)hjarta
Framhaldssaga
.....
Haustkvöld