.....
Annar mánuður, dagur, klukkustund
enn með þig í huga mér
annað ár, annað líf
og enn þú leynist hér.

Næturnar andvaka og þjáð
sí og æ með grátinn í kverkunum
kvalin á hjarta og sál
lifi þannig með verkjunum.

Dagarnir líða mér hjá
hamingjan í för með þeim
svefngengill er ég
að reyna að finna leiðina heim.

Rek mig reglulega á
leifar tilvistar þinnar
skaddað hjarta mitt tifar
án þátttöku minnar.

Innra með mér græt
þegar ég brosi hið ytra
þótt beri höfuðið hátt
má ávallt sjá líkamann titra.  
Berglind Ósk Bergsdóttir
1985 - ...


Ljóð eftir Berglindi Ósk Bergsdóttur

Dauðinn
Berorðað
Kuntulaus hóra
Þunglyndi
með tímanum
Lífsspeki
Nýöld er köld
“Það varð slys..”
Ástarbrum
Okkar ást
Skaut framtíðar
Ástarsorg
ljóð.is
Leyndarmálið
Eitt andartak
Tær ást
Ríma til þín
Óöryggi
Biðstaða
Ein ég sit og surfa
Í hjarta mér þú dvelur
Þrá eftir því ófáanlega
Ást í takt við lífið
Venslin okkar
Fingraleikfimi
Eftir að þú ferð
Ástríður
Ástarspilið
köfnun er nú ekkert svo slæmur dauðdagi
Er það ekki?
Þinn missir
Söknuður II
Kollhnís
Óskila(ð)hjarta
Framhaldssaga
.....
Haustkvöld