Játning
Ég er djöfullinn
sem hvítþvær sig á baðinu þínu
fyrirgefðu mér að ég hafi ekki haft
meira til að gefa þér
ég vildi að ég hefði haft eitthvað vitsmunalegt að segja
en ég er tóm
tóm
auð
blönk
gjaldþrota í þessari ástartogstreitu
og þú fyllir ekki lengur upp plássið

Ég get ekki elskað þig
jafn innilega og þú elskar okkur
ég elskaði svo marga aðra

Ég var djöfullinn sem hvítþvoði sig
á baðinu okkar
þar til vatnið varð rautt  
Ásland
1988 - ...
Nóv 09


Ljóð eftir Ásland

Játning
Ókei
Draumar
Ótitlað
Hjásvæfa
Þessi eilífa eina nótt
Það sem sett hefur verið í geymslu
Sjálfsvirðingin
Núll
Vinir með hagsbótum
Svona vil ég hafa þetta
Í dag er ég hamingjusöm
Fimm árum síðar
Um stúlkur og ímynduð virki
Sjálfsagður hlutur
Geðveikin sem andar í hálsmálið mitt
Að brenna við
Nafna mín
Fasti
Fasti II
PhD
Að beygja
Er ég hugrökk?
Þrjú ár
Kæri drullusokkur
Væmið ljóð
Ósk
Það var þetta með stúlkurnar og virkin
Gegnum sætt en ekki súrt
Ég elska þig
Án heimilis
Flogaveiki
All the happy people
Hospital beds