Sjálfsvirðingin
Mér var sagt að hefja leit
að löngu glötuðum hlut
og ég hef ekki hugmynd um hvar ég ætti svosem að byrja
ligg bara hér agndofa og sífellt þreytt
því mig grunar að með þennan hlut verði það ekki
eins og með aðra

hann mun ekki finnast
ekki einu sinni á síðasta staðnum sem ég leita
 
Ásland
1988 - ...
09.02.09


Ljóð eftir Ásland

Játning
Ókei
Draumar
Ótitlað
Hjásvæfa
Þessi eilífa eina nótt
Það sem sett hefur verið í geymslu
Sjálfsvirðingin
Núll
Vinir með hagsbótum
Svona vil ég hafa þetta
Í dag er ég hamingjusöm
Fimm árum síðar
Um stúlkur og ímynduð virki
Sjálfsagður hlutur
Geðveikin sem andar í hálsmálið mitt
Að brenna við
Nafna mín
Fasti
Fasti II
PhD
Að beygja
Er ég hugrökk?
Þrjú ár
Kæri drullusokkur
Væmið ljóð
Ósk
Það var þetta með stúlkurnar og virkin
Gegnum sætt en ekki súrt
Ég elska þig
Án heimilis
Flogaveiki
All the happy people
Hospital beds