Þrjú ár
Það voru hólar og hæðir
og gafflar í veginum
en við völdum sömu leið

Mig hafði ekki grunað
að það gæti verið svona gott að vera svolítið venjulegur
og heldur ekki
að hægt væri að stíga niður af vantrausts tánum
án þess að detta

Ég vissi ekki að til væri svona ró

Þegar þú kemur heim langar mig bara að brosa
og ég get varla klárað þetta ljóð því það eina sem mér dettur í hug
eru gamlar klisjur
um ást
sem er svo gömul
Gamla ást
en samt svo ný

Ég kem með þér
upp og niður
framhjá öllum göfflunum  
Ásland
1988 - ...
29.08.13


Ljóð eftir Ásland

Játning
Ókei
Draumar
Ótitlað
Hjásvæfa
Þessi eilífa eina nótt
Það sem sett hefur verið í geymslu
Sjálfsvirðingin
Núll
Vinir með hagsbótum
Svona vil ég hafa þetta
Í dag er ég hamingjusöm
Fimm árum síðar
Um stúlkur og ímynduð virki
Sjálfsagður hlutur
Geðveikin sem andar í hálsmálið mitt
Að brenna við
Nafna mín
Fasti
Fasti II
PhD
Að beygja
Er ég hugrökk?
Þrjú ár
Kæri drullusokkur
Væmið ljóð
Ósk
Það var þetta með stúlkurnar og virkin
Gegnum sætt en ekki súrt
Ég elska þig
Án heimilis
Flogaveiki
All the happy people
Hospital beds