Ótitlað
Það tók mig ekki langan tíma
að sannfæra mig um að enginn ætti eftir að elska mig aftur
að minnsta kosti aldrei aðeins mig eina
og dá mig
eins og þú
ég hlýt að vera eitthvað klikkuð
að vakna svona einn daginn og vilja ekki þessa endalausu ást lengur
og hætta bara við
þessa andskotans endalausu botnlausu skilyrðislausu ást sem þú gafst mér
hvað varstu að hugsa?
hvernig datt þér til hugar að ég gæti nokkurntíma endurgreitt þér
þetta flóð?

Það á enginn eftir að elska mig aftur eins og þú
en það skrifast þá á mig
þau framtíðar framhjáhöld og svívirðingar komandi maka minna
skrifast alfarið á mig
 
Ásland
1988 - ...
Jan 10


Ljóð eftir Ásland

Játning
Ókei
Draumar
Ótitlað
Hjásvæfa
Þessi eilífa eina nótt
Það sem sett hefur verið í geymslu
Sjálfsvirðingin
Núll
Vinir með hagsbótum
Svona vil ég hafa þetta
Í dag er ég hamingjusöm
Fimm árum síðar
Um stúlkur og ímynduð virki
Sjálfsagður hlutur
Geðveikin sem andar í hálsmálið mitt
Að brenna við
Nafna mín
Fasti
Fasti II
PhD
Að beygja
Er ég hugrökk?
Þrjú ár
Kæri drullusokkur
Væmið ljóð
Ósk
Það var þetta með stúlkurnar og virkin
Gegnum sætt en ekki súrt
Ég elska þig
Án heimilis
Flogaveiki
All the happy people
Hospital beds