Væmið ljóð
Ég spáði um daginn
hvort möguleiki væri á því að ég hefði verið fullfljótfær að festa ráð mitt á ný
því það þykir fólki víst
í dag
og það hefði mér líka þótt undir öllum eðlilegum kringumstæðum

spáði
hvort ég hefði virkilega í alvöru réttilega getað verið
búin að leita eins og þurfti?

finna þennan eina

hafði ég leitað svona hratt eða hreinlega ekki nóg?

en kringumstæðurnar voru bara ekkert eðlilegar
því ég féll á fésið
og naut þess

ef heimurinn heldur að sá eini sé þarna úti enn
þá afsanna ég heiminn auðveldlega
því hann verður áfram einn, sá eini

ég hef fundið minn og hann er ekki einn
heldur alveg milljón
 
Ásland
1988 - ...
Nóv 2011


Ljóð eftir Ásland

Játning
Ókei
Draumar
Ótitlað
Hjásvæfa
Þessi eilífa eina nótt
Það sem sett hefur verið í geymslu
Sjálfsvirðingin
Núll
Vinir með hagsbótum
Svona vil ég hafa þetta
Í dag er ég hamingjusöm
Fimm árum síðar
Um stúlkur og ímynduð virki
Sjálfsagður hlutur
Geðveikin sem andar í hálsmálið mitt
Að brenna við
Nafna mín
Fasti
Fasti II
PhD
Að beygja
Er ég hugrökk?
Þrjú ár
Kæri drullusokkur
Væmið ljóð
Ósk
Það var þetta með stúlkurnar og virkin
Gegnum sætt en ekki súrt
Ég elska þig
Án heimilis
Flogaveiki
All the happy people
Hospital beds