sköpun drottins
Drottinn skóp og Drottinn drap.
Djáknana og stjörnuhrap.
Adam, Evu og eplakrap.
Á sjötta degi gengistap
Drottinn gaf og Drottinn tók.
Drepsóttirnar sjö og bók.
Son sinn, Nestlé, Snickers, kók.
en Sancti Maríu gaf hann lók.
Drottins líf og Drottins lind.
Líkneskjur í Jésús mynd.
Skapaði svo erfðasynd
svo sæi mun á lamb og kind
Drottinn blessar, Drottsins böl.
Breytir bara sandi í möl.
Í fyrra bindi boðar kvöl,
nú býður drottinn mönnum völ
Drottins undur, Drottins nauð.
Dauðavélar. sólin rauð.
Restinn ráfar, sem hann bauð.
Rachel Ray er daglegt brauð.
Drottins þrælar, drottsins þegn.
Þýlundaður ertu í gegn.
Vopn almættis eru megn.
Ophra, brennisteinn og regn.
Djáknana og stjörnuhrap.
Adam, Evu og eplakrap.
Á sjötta degi gengistap
Drottinn gaf og Drottinn tók.
Drepsóttirnar sjö og bók.
Son sinn, Nestlé, Snickers, kók.
en Sancti Maríu gaf hann lók.
Drottins líf og Drottins lind.
Líkneskjur í Jésús mynd.
Skapaði svo erfðasynd
svo sæi mun á lamb og kind
Drottinn blessar, Drottsins böl.
Breytir bara sandi í möl.
Í fyrra bindi boðar kvöl,
nú býður drottinn mönnum völ
Drottins undur, Drottins nauð.
Dauðavélar. sólin rauð.
Restinn ráfar, sem hann bauð.
Rachel Ray er daglegt brauð.
Drottins þrælar, drottsins þegn.
Þýlundaður ertu í gegn.
Vopn almættis eru megn.
Ophra, brennisteinn og regn.