Ástin
Þú ert mér svo nýtt
Ég þekki þig ei
Þitt hjarta er svo hlýtt
Við þig ég segði aldrei nei

Þú þekkir ei sorg mína
En skilur mig þó
Ég finn heita ást þína
Af henni fæ ég aldrei nóg

Enginn leikur líf mitt er
En enginn það veit
Því er nú miður og ver
Því enginn við mér leit

Þangað til að komst þú
Þú huggaðir mig
Fyrir umhyggju og ást ég finn nú
Óstjórnlega elska ég þig

Blíður er þinn mjúki koss
Ást mína gef ég þér
Þú ert hraður sem dynjandi foss
En enginn það sér
 
Anna María Olsen Poulsen
1987 - ...
lýsir því sem lýsa þarf :)


Ljóð eftir Önnu Maríu Olsen Poulsen

I don't know... But love hurts...
Draumur
Sagan af Ingu
Sárindi og reiði...
Mamma & Pabbi
Hvað gengur á??
Blind Justis
My mind...
Why???
Söknuður Stúlkunnar
Hrifning
Lífið
Ástin
Þreyta
Myrkrið