Dans stjarnanna
Í myrkri sit ég ein og skoða skugga
Skærir geislar drógu sig í hlé
Töfrandi og tælandi ég sé
trylltar stjörnur dansa‘ og myrkrið hugga.

Ljós úr norðri leika tóna bjarta
Litir gleðja striga myrkurs fljótt
Vindur strýkur vanga blítt og hljótt
Vorið hvíslar ástarorði‘ í hjarta
 
Steinunn Friðriksdóttir
1993 - ...


Ljóð eftir Steinunni Friðriksdóttur

Orðin sem hlaupa frá mér
Eftirsjá
Skammdegi
Hugsanir skáldsins
Feigð ástarinnar
Ernir
Vetrarþrá
Dans stjarnanna
Requiem
Táradalur eyðimerkurinnar
Vorvindar
Sólskríkjan
Vorhret
Takk