Í brotnu gleri
Þeir sögðu að hamingjan
væri ekki til
lífið væri lastafullt
leiðingjarnt spil

að sálin
líkt og örflugan deyr
og liðnir dagar
koma ekki meir

Þeir sögðu að hamingjan
hógvær og hrein
fóðraði ei þjóðir
né læknaði mein

við föðmuðum heiminn
full af þrá
heiminn
sem að hljóp okkur frá

starandi í spegil
hlið við hlið
í brotni gleri
reyndum við

Við horfðum frá stjörnum
á allt sem að deyr
mannana verk
máttlaus og meir

starandi í spegil
hlið við hlið
í brotnu gleri
elskuðum við  
Sigurgeir Vilmundarson
1972 - ...


Ljóð eftir Sigurgeir

Allsnægtarpláneta
Miðað á mánann
Metnaður
Synir vor þjóðar.
Andleg upprisa.
Skilningur
Harður húsbóndi
Móðir
Myndin
Einmanna sál
Örvænting
Í draumi þeirra daga (vinarkveðja)
Myndin af okkur
Norðanbylur
Í brotnu gleri
Eins og allir hinir
Samferða
Samstíga
Áttavilltur
Fílamaðurinn og hirðirinn hans.
Skömm
Ofvirkni
Hvað er frelsi?
Kæra vinkona
Þráhyggja.
Nostalgía
Í brimrótinu