Sólin skín ekki alltaf
Það kom eins og elding,
og það myrkvaði snögglega.
Ljósið beindist að mér,
en ég vissi að þú værir nálægt.
Svo rankaði ég við mér,
og þú varst farinn.

Morguninn eftir varstu fundinn,
aleinn,
í fjörunni.
Allir söknuðu þín.
Allir gera það enn.

Einn sólbjartan dag,
er möguleiki,
á að sjá þig aftur.

En þangað til,
bíðum við,
full sorg og reiði,
bíðum eftir að sjá þig,
því sólin skín ekki alltaf.  
Rakel Sólrós
1987 - ...
Um frænda minn, hann Hauk, sem lést þann 16. mars 2003.


Ljóð eftir Rakel Sólrós

Höfuðverkur
Nógu sniðugt?
Sólin skín ekki alltaf
Rödd sjávarins
Ský
Fyrir utan kassann
Orð
Sérðu í gegnum mig?
Snjókorn falla (á allt og alla)
Sársaukinn