aftur.kannski.alltaf.
Löngu seinna
þegar ég sá þig næst
þín var svo fínleg
hún tók ekki eftir
hvernig augu okkar mættust.
Við fundum bæði
minninguna
um saltsveittan
núninginn
og það sem aldrei varð.
Um leið og við gengum þegjandi
framhjá hvort öðru
var það aftur búið.
Ég fann að þú leist við,
en við næsta horn
staldraði ég aðeins við
og saknaði þín.
þegar ég sá þig næst
þín var svo fínleg
hún tók ekki eftir
hvernig augu okkar mættust.
Við fundum bæði
minninguna
um saltsveittan
núninginn
og það sem aldrei varð.
Um leið og við gengum þegjandi
framhjá hvort öðru
var það aftur búið.
Ég fann að þú leist við,
en við næsta horn
staldraði ég aðeins við
og saknaði þín.