Bæjarmyndun í Kópavogi.


Frumherjar höfðu fremd og þor
forystulið og hraustlega mannað.
frumbyggjar átu síld og slor
sjálfsagðar þarfir og annað.
Oft kom kvef með herjans hor
hóstandi smit var bannað.

Dæmigerðir dugnaðar hópar
deildu kjörum í bræðralagi.
Sameign í verki á samvinnu hrópar
sum húsin risu með gler í fagi.
Björgun í stormi barnsminni grópar
bundið er þakið með vírastagi.

Í Kópavogi er margra minnst
menn er sýndu kjark og dug.
er norðan áttin þrýstir þynnst
þagnar gnauð og lyftir flug.
Jón úr Vör hér kannski kynnst
Kársnes Dís með frjóann hug.

Í landamerkjum listamanns
ljóðmagnaðist þankagangur.
Smæðin tafði ei hugsun hans
hingað spottinn þótti langur.
Hans var líf ei glamúr glans
getinn heima þyrstur svangur.

Teygðist byggð um holtsins hæðir
húsaraðir í breiðum línum.
Hugsjón fólksins hjarta bræðir
hver og einn að vilja sínum.
Hvað frumkvöðla getuna glæðir
gagnast hún lífskjarna fínum.

Stór og stækkar bærinn enn
stanslaust beðið um lóðir.
Festu Rætur framsýnismenn
framkvæmdaglaðir og góðir.
Án Kópavogs verður sveitin senn
soðin og matreydd við hlóðir.

Bærinn verndaði sveita sælu
samstillti óskir aðstoðar háðar.
Kærleik fundu í guðsins gælu
gruflandi andans ljóða snáðar.
Dáða kross í dinglandi nælu
dáðlegar Orður í barma skráðar.


 
Atli
1941 - ...


Ljóð eftir Atla

ER LÍFIÐ MYGLUSVEPPUR .
Guð í Efni
Herjaður Friður.
Hjallaland og Hálendi
Ást og dekur
Arðrán eða Þjóðarhagur
Niða Dvergar .
Bæjarmyndun í Kópavogi.
Ástin
Kópavogur Hverfakynning
Hverjum er að treysta
Huggun.
Axla Ypptar
Friður eða Hel.
Myndlistarráðunautur
Samband við Æsi
Öldrun
Vörðuð leið
Pólitík
STYTTAN
Foringja eða Lýðræði
LAND OG FEGURÐARVERND
Guð hinn almáttugi.