Fjara
Veturinn er kannski kominn.
Kafaldið oltið ofan af fjalli.
En hér í fjörunni er fugl,
flýgur, segir það sama
og í sumar.
Öldurnar gjálfra glaðar,
gusa sér jafnvel upp á stein.
Gömul útþrá tekur sig upp
og spillir andartakinu.
Kafaldið oltið ofan af fjalli.
En hér í fjörunni er fugl,
flýgur, segir það sama
og í sumar.
Öldurnar gjálfra glaðar,
gusa sér jafnvel upp á stein.
Gömul útþrá tekur sig upp
og spillir andartakinu.