Fortjaldið
Jörðin myrkvaðist
Fortjaldið rifnaði í tvennt
í einum rykk

þú sagðir mig seka
seinna sá ég
að afbrýði olli þar engu
heldur það
að þú sagðir mig seka

ég ríf ekkert
ég hverf

dreg minn helming tjaldsins með
upp úr votri jörðinni

þú rífst
og tjaldið þitt brennur hægt
 
María Magnúsdóttir
1984 - ...
ég er vatn og jörð
þú eldur
nú skilur loftið okkur að


Ljóð eftir Maríu Magnúsdóttur

Öldurnar
Kaldhæðni
Ungfrú Framtíð
Hættu
Tilfinningarnar
Grár himinn
Hann
Klósett-iða-hring-iða
Örmagna
Ein
Brosið þitt
Vetrarbæn
Lítið bænastef
Kröfur á íslenskan karlmann
barki látúns án tjúns
Feita barnið
Óvæginn hégómi
Landinn
Stór orð
Hárbeitt ævintýri
Lygi
Fortjaldið
Nornaseyði
Frímerki
Jólagjöf alþingis
Afturhald
Leikur
Sérðu þær ekki?
Ljós og skuggar
Get ekki meir
Angur