paradís ?
Þú komst inn í líf mitt
sem ljúfur leiði,
laugst að mér, lamdir og reittir
til reiði,
að endingu hjarta mitt lagðir í eyði,
því of seint mér skildist hvað hér var
á seyði,
- ást okkar óx ei af sama meiði
Í upphafi vildi alla veröld þér gefa,
þú varst ástin mín eina og ég var
þín Eva,
uns kvöld eitt þú kvaddir með
krepptum hnefa,
ég sorgina og sársaukann reyndi að sefa,
- en verund mín fylltist af ótta og efa
Hvað var það sem gerði okkar sambúð að víti ?
Kannski hún hófst í of miklum flýti,
já furðuleg voru'okkar síðustu býti,
full heiftar og reiði og óþverratríti,
- þú hlýtur að skilja'að mig frá þér nú slíti
Of lengi ég bjó við háð orðanna þinna,
og senn varð mín lund hrafnsvört sem tinna,
uns upp hófst mín raust "þessu verður að linna",
og ég lagði af stað til að leita og finna,
- kjarkinn og trúna'í höll draumanna minna