Endaleysa
Hann fæddist
ólst upp í skóla
skrapp í gönguferð
um lífið
og kom til baka
sem kennari
Hann fór að kenna í skóla
sem síðan var breytt
breytt í elliheimili
og hann kemst ekki út
 
Herdís Pála
1971 - ...


Ljóð eftir Herdísi Pálu

Ástarjátning
Apache
Ég ætla að hlæja
Gönguferð með Jökli að vori 2003
Tattóveraðir englar
Í 1. bekk
Útiklefinn í Árbæjarlaug
Tjáning tilfinninga
Endaleysa
Sorglegt
Lög um ástina
Orri
Sylvía Rós, ferming í maí 2002