Mynd í fjörunni
Ísköld er þokan
sem byrgir mér sýn yfir flóann.
Undir náhvítri blæju í fjörunni
hvíla tvö för
er sigldu eitt sumar
um safírblátt haf,
en dapurlegt feilspor
dró þau í naust.
Í kring, lúta frostbitin strá
og tár þeirra frjósa
á helkaldri mjöllinni.


í september 2007
© allur réttur áskilinn höfundi

 
Jón Heiðar
1946 - ...


Ljóð eftir Jón Heiðar

Mynd frá Chad
Fuglinn í búrinu
Júlínótt við Skjálfanda
Söknuður
Fylgd
Pétur og Inga
Nóttin sú
Kona
Júlímorgun
Vonbrigði
Án titils
Án titils
Án titils
Veistu það kona
Mynd í fjörunni
Meðan þögnin hvíslar
Farinn
Í orðastað
Hin grimma bardagakona
Lítil, segir ömmu sögu.
Æskuminning
Kiddi langi
Vinur minn sjötugur
Að kvöldi dags
Lítið bréf að lokum
Það rökkvar
Til ömmu minnar
Leiðigjarna sunnan sónatan....
Svanhildur
Annalok í vorskólanum
Hreinkýrin unga