Afi
Afi, nú ertu dáinn og farinn til englanna.
Og með þér fór tækifærið til þess að kynnast þér
Ég veit ekki hvernig mér á að líða, þetta er allt svo skrýtið.
Ég þekkti þig aldrei, en mig langaði alltaf til þess.
Vissi bara ekki hvernig ég ætti að fara að því.
Og nú ertu farinn.
Á ég að vera reið af því að ég þekkti þig ekki neitt?
Eða á ég ekki að finna fyrir neinu,
af því að í rauninni er ekkert að breytast?
Nei, ég er sorgmædd, af því ég kynntist þér aldrei,
eins og mig langaði alltaf til.


Afi, láttu þér líða vel hjá Guði,
ég sé þig þegar ég kem til englanna,
þá getum við kynnst.


23. júní 2008

 
Rannveig Iðunn
1987 - ...
Tileinkað Herði Steinbergssyni sem dó 22. júní 2008


Ljóð eftir Rannveigu Iðunni

Garðurinn
Sumarið
A life with you
Locked inside
A life without hope is not a life at all
My imaginary world
Spurningamerki
You let me down
My dream is lost
Alone in the dark
Many kinds of me!
I’m in jail
Going away
Death
Alone
Mystery
Kraftaverk
Litla barn
Emma Rós
Svart hjarta
Síðustu andartökin
Verndarengill
Uppgjöf
Fly Away
Guardian Angel
Takk fyrir
Anxiety vs. happiness
Enginn titill
Dimmar nætur
Afi