Biðstaða
ég bíð eftir að klukkan vekji mig
með frekjulegu kalli sínu.
ég bíð eftir að umferðaljósin sýni lit
og hleypi mér af stað.
ég bíð eftir að vinnudagurinn sjái sér fært
um að silast áfram.
ég bíð eftir að sjónvarpsdagskráin geispi golunni
þetta kvöldið.
ég bíð eftir að langþráði svefninn miskunni sig yfir mig
að nóttu til.
ég bíð eftir að þú finnir ást þína á mér meðal tilfinninga þinna.
ég bíð.
eins gott að þú sért biðarinnar virði.